Þegar ímyndunaraflið fær að leika lausum hala getur allt gerst! Blær og Busla fara út í búð að kaupa mjólk og á vegi þeirra verða snarbrött fjöll og flókið völundarhús, frumskógardýr, bergrisar og aðrar furðuverur. Allir ættu að geta samsamað sig aðalpersónunni sem heitir Blær og er algjörlega kynfrjáls. (Heimild: Bókatíðindi)